Bleik próf: Hversu óþolandi ertu á Facebook?

Þú kannast örugglega við það þegar þú skrollar niður tímalínuna á Facebook og sérð innlegg frá vinum og fjölskyldumeðlimum að sum þeirra stuða þig meira en önnur. Mörg innleggjanna hafa lítinn sem engan tilgang og fólkið sem setur þau inn fer meira og meira í taugarnar á þér, með hverri færslunni, fyrir vikið.

En hvað með þig? Ert þú óþolandi á Facebook án þess að gera þér grein fyrir því?

Smári Pálmarsson
Created by Smári Pálmarsson(User Generated Content*)User Generated Content is not posted by anyone affiliated with, or on behalf of, Playbuzz.com.
On Aug 15, 2015

Hversu oft sendir þú vinum þínum leikjabeiðni, til dæmis í Candy Crush?

Hversu oft deilir þú myndum af barninu/börnunum þínum?

Setur þú tvíræð skilaboð á síðuna þína. Þar sem til dæmis stendur: „Úff hvað ég er fegin að þessum ömurlega degi er lokið,“ í þeim tilgangi að vekja forvitni fólks?

Hversu oft setur þú myndir af matnum þínum á Facebook?

Hversu oft skiptir þú um forsíðumynd?

Fer það í taugarnar á þér þegar fólk kommentar ekki eða gerir ekki læk á myndirnar þínar og stöðuuppfærslur?

Merkir þú vini þína á þeim myndum sem þú setur inn?

Finnur þú þig knúinn til þess að deila því með vinum þínum hvað þú hljópst/hjólaðir mikið á Edumundo (eða sambærilegum forritum) eða hversu mikið þú tókst á því í ræktinni?

Þú tekur "selfie" sem heppnast svona svakalega vel. Setur þú myndina á Facebook?

Staðsetur þú þig á Facebook þegar þú ert til dæmis staddur í flugstöðinni, á kaffihúsi í erlendri borg, á tónleikum eða á fínum veitingastað?

Þú ert ósýnilega týpan

Þú ert ósýnilega týpan

Vertu alveg róleg/ur. Þú ert alls ekkert pirrandi. Þú ert frekar ósýnleg/ur á Facebook. Í raun setur þú svo lítið um þig inn á síðuna dagsdaglega að fólk þarf að hafa upp á þér persónulega til að vita hvað er að frétta af þér. Haltu áfram að vera svona frábær, þú ert sannur Facebook vinur.

Þú ert á grensunni

Þú ert á grensunni

Þú ert dugleg/ur að deila sérstökum augnablikum, en þau geta stundum farið úr böndunum. Þess vegna ættir þú að hafa í huga að trappa þig örlítið niður áður en allt fer úr böndunum.

Þú ert óþolandi týpan

Þú ert óþolandi týpan

Þá veistu það. Þú ert svo ótrúlega óþolandi á Facebook að líklega eru mun fleiri búnir að fela innleggin frá þér heldur en þú gerir þér grein fyrir.

These are 10 of the World CRAZIEST Ice Cream Flavors
Created by Tal Garner
On Nov 18, 2021